Skýrsla um skýrslu??

Bíddu nú við. Rannsóknarnefnd Alþingis hefur núna unnið í u.þ.b. eitt ár til að já rannsaka og skila skýrslu sinni. Nú á að setja upp nýja nefnd til að skila skýrslu allt að níu mánuðum eftir að fyrsta skýrsla kemur út bara til að segja okkur það sem við eigum að heyra. Ég hef engan áhuga á því að lesa mig til um efni sem búið er að klippa út úr uppruna sínum, úr heimi hlutlausra aðila og yfir í heimi þingmanna sem hafa sérstaka hagsmuni að gæta hvað sé sagt í upprunalegu skýrslunni. Fyrirgefið en þetta er ekki alveg að virka fyrir mig svona vinnubrögð!

Fáránlegt.


mbl.is Fyrningarfrestur þrjú ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig væri nú að kynna sér málin áður en þú rýkur á netið og eyst úr skálum reiðinnar? Þingmannanefndin á ekki að skrifa nýja skýrslu eða velja úr það sem þú færð að sjá úr skýrslu rannsóknarnefndarinnar, heldur að ákveða hvernig brugðist verður við skýrslunni -- sem, NB, verður sett beint á netið um leið hún verður send þinginu. Umboð rannsóknarnefndarinnar var að rannsaka málið en ekki gefa út ákærur. Greinilegt er að þingmenn búast við að ýmislegt komi þar fram sem gæti kallað á ákærur -- sumt lendir sjálfsagt á borði saksóknara því þar er um að ræða brot á lögum, en einnig getur verið um pólitísk mál að ræða sem Alþingi eitt getur tekið ákvörðun um og verða lögð fyrir landsdóm.  

Sigurður Guðmundsson (IP-tala skráð) 28.12.2009 kl. 13:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband