"... hvað gerist þá ef rýma þyrfti borgina í flýti?"

Þetta er án efa besta setningin sem ég hef heyrt lengi um gatnakerfi borgarinnar. „ef nokkrir íbúar með tjaldvagna valda þessum töfum hvað gerist þá ef rýma þyrfti borgina í flýti?".

Stjórnmálamenn ættu að hafa þetta bakvið eyrað við skipulag gatnakerfis kringum borgina og bara í raun allstaðar ;)


Ef t.d. olíutankarnir á Örfirðisey myndu nú einn góðan veðurdag standa í ljósum logum (eins og hefur nú gerst í Bretlandi og víðar) þyrfti að rýma með stórt svæði kringum stöðina. Hvernig ætti það t.d. að fara fram? Sé allavega fyrir mér frekar mikið stress og "panic" kringum miðbæinn og vesturbæinn.
mbl.is Ók tvisvar í gegnum radarmælingu lögreglu á of miklum hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sundahöfn- skip-akranes

Nema þú viljir taka með þér fellihýsið í neyðinni.

Þegar raunveruleg neyð myndast, þá er gripið til neyðarúrræða, efast t.d. að þér yrði sama hvort þú færir upp á skaga, þingvelli eða hveragerðis.

Vegir á báðar áttir yrðu að einstefnugötum.

Vegir út úr bænum yrðu þá um 30 í nánasta umhverfi miðbæjarins og 6 þegar þú værir kominn út fyrir borgarmörk.

Magnús Geir Guðmundsson. (IP-tala skráð) 25.6.2007 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband