Færsluflokkur: Landpostur.is
Laugardagur, 2. maí 2009
Paul Ramses: Hvernig má útrýma hungri og fátækt?
Nafn Keníamannsins Paul Ramses Oduor rataði óvænt í fréttir í sumar þegar íslensk stjórnvöld sendu hann úr landi og nauðugan til Ítalíu. Mikil mótmæli brutust út í kjölfarið og voru vinnubrögð stjórnvalda harðlega gagnrýnd sem olli því að Paul fékk að snúa aftur til landsins í lok ágúst. Á miðvikudaginn, 4. febrúar kl 12:00 mun Paul flytja erindið Hvernig má útrýma hungri og fátækt? á hinu vikulega félagsvísindatorgi í stofu L-201 í boði Kumpána, félag stúdenta við félagsvísinda -og lagaskor. Erindið átti upphaflega að vera haldið í síðustu viku, en var óvænt færður vegna þess að flug lá niðri frá Reykjavík.
Í erindi sínu á Félagsvísindatorgi mun hann ræða þær ástæður af hverju hann hóf þátttöku í stjórnmálum og tók virkan þátt í samfélagsmálum með það markmið að vinna að útrýmingu á hungri og fátækt, segir í fréttatilkynningu frá Kumpánum sem send var nemendum í dag, en Paul starfaði áður en hann kom til Íslands að mannúðarmálum meðal annars í samstarfi við íslensk hjálparsamtök.
Paul starfaði með samtökunum TEARS Children and Youth Aid sem studdi 200 munaðarlaus börn í Kenía og átti hann drjúgan þátt í stofnun samtakan, segir í tikynningunni og hóf Paul afskipti af stjórnmálum árið 2002.
Mál Paul Ramses vakti mikla athygli og fjallað mikið um hans mál í íslenskum fjölmiðlum eins og fram hefur komið og mun Paul einnig ræða um dvöl sína á Ítalíu í erindi sínu á morgun.
Nemendur og gestir eru hvattir til að mæta á erindið, en eins og áður er torgið opið öllum þeim sem vilja mæta. Nemendur skólans sem skráðir eru í áfangann fá einnig mætingu skráða eins og önnur torg.
-----------
Greinin var skrifuð fyrir landpostur.is, fréttavef Fjölmiðlafræðinema við Háskólann á Akureyri. Fréttin birtist þann 02. febrúar 2009 kl 14:27
Laugardagur, 2. maí 2009
Mikil óvissa næstu fjóra mánuði
Sjálfstæðisflokkurinn og í raun þjóðin öll varð fyrir miklu áfalli í gær þegar Geir H. Haarde tilkynnti þjóðinni á blaðamannafundi í Valhöll í dag að hann hafi greinst með illkynja æxli í vélinda. Geir boðaði á sama tíma kosninga þann 9. maí næstkomandi sem mótmælendur telja sem hænufet í átt að kröfum þeirra, en mótmælendur ætla að halda baráttunni áfram þangað til ríkisstjórnin segi af sér. En upp vakna spurningar hvort ríkisstjórnin geti mögulega starfað í ljósi þess að tveir valdamestu og mikilvægustu aðilar séu nú að ganga í gengum alvarleg veikindi.
Það eru náttúrulega breyttar aðstæður núna, raunar mjög breyttar aðstæður, segir Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur og lektor við hug og félagsvísindadeild við Háskólann á Akureyri, og bætir við að búið er að eyða ákveðinni óvissu í þjóðfélaginu, en aftur á móti væri búið að skapa nýja óvissu á öðrum sviðum. Það liggur fyrir að það verða kosningar í vor, þeirri óvissu er búið að svara., sagði Birgir. Stóra óvissan [í dag] er hvort að ríkisstjórnarsamstarfið haldi velli þrátt fyrir að báðir foringjarnir hafa lýst yfir áhuga á því að klára þetta fram að kosningum.
Á fjórða þúsund notenda á samskiptavefnum Facebook hafa krafist þess að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, virki 24. grein stjórnarskrárinnar, en þar segir að forsetinn geti rofið Alþingi og boðað til kosninga. Að sögn Birgis getur forsetinn það ekki að eigin frumkvæði. Það er bara forsætisráðherra sem getur rofið þing. Hinsvegar ef það kæmi fram vantrauststillaga þá í raun neyðist hann til þess þar sem þingið studdi ekki ríkisstjórnina, en það er óvíst að það verði.
Það er því mikil óvissa í samfélaginu hvað gerist á næstu vikum og mánuðum en án efa stóra spurningin nú er hver muni leiða sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum. Þegar í stað hafa þó nokkur lýst yfir áhuga á formannsstólnum og bárust meira segja fréttir stuttu eftir að Geir tilkynnti að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri. Birgir segir að það er ekkert skrítið við að menn fari að tala saman og skoði stöðu sína. Menn hafa ekki langan tíma til umhugsunar, þetta er í raun stuttur tími fram í mars fram að formannskjöri. Þannig er bara lífið í pólitíkinni.
-----------
Greinin var skrifuð fyrir landpostur.is, fréttavef Fjölmiðlafræðinema við Háskólann á Akureyri. Fréttin birtist þann 24.janúar 2009 kl 15:38
Laugardagur, 2. maí 2009
Krafa mótmælenda er skýr
Mótmælendur komu saman á ráðhústorgi í dag til að sýna á ný samstöðu með þeim aðgerðum sem nú standa enn yfir í miðborg Reykjavíkur. Stutt hlé var gert á mótmælafundinum upp úr klukkan sex, en margir áttu leið sýna á borgarafund í Deiglunni þar sem tekið var fyrir skerðingu í menntamálum. Fundurinn var vel sóttur og var þétt setið í salnum, en skipuleggjendur áætla að yfir 120 manns hafi verið á fundinum.
Að fundi loknum var hald áleiðis niður á Ráðhústorgi að nýju þar sem bálkesturinn frá því í gærkvöldi var tendraður á ný, slegið var á trommur og ýmsilegt handlægt og voru flugeldar og kínverjar sprengdir upp. Krafa mótmælenda er skýr, ríkisstjórnin þarf að víkja og boða þarf til kosninga.
Það vakti þó sérstaka athygli að einhverjir mótmælendur drógu fram jólatré sem kastað var í bálið og endaði það ævi sína á sama hátt og Oslóartréið gerði í gærkvöldi fyrir sunnan.
Á sama tíma og mótmælin hér stóðu sem hæst bárust þau tíðindi úr höfuðstaðnum að lögreglan beitti táragasi á mótmælendur við Austurvöll, en slík valdbeiting hefur ekki verið notuð síðan 1949 hér á landi, eða í rúmlega 60 ár. Lögreglan á Akureyri hefur fylgst með mótmælunum í kvöld úr fjarska en hefur ekki þurft að grípa inn aðgerðirnar.
Einhver hræðsa greip um sig meðal mótmælenda þegar nokkrir mótmælendur sprengdu upp heimatilbúnar sprengjur á torginu og sprakk ein þeirra nærri blaðamanni landpóstsinns sem kastaðist aðeins til en slapp ómeyddur. Að öðru leyti fóru mótmælin friðsamlega fram.
Myndir af borgarafundinum og mótmælunum í kvöld má sjá hér
--------
Greinin var skrifuð fyrir landpostur.is, fréttavef Fjölmiðlafræðinema við Háskólann á Akureyri. Fréttin birtist þann 22. janúar 2009 kl 01:34
Landpostur.is | Breytt s.d. kl. 02:54 | Slóð | Facebook
Föstudagur, 13. febrúar 2009
17 ára stúlka sigrar Söngkeppni Verkmenntaskólans á Akureyri
Landpostur.is | Breytt 16.2.2009 kl. 09:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. janúar 2009
Barack Obama 44. bandaríkjaforseti
Fyrir embættistöku Obama sagði presturinn Rick Warren í bæn sinni: Við vitum í dag að Martin Luther King og mörg vitni eru að hrópa af gleði í himnaríki", en með þessu er hann að vísa í réttindabaráttu blökkumanna sem í dag hefur unnið stórsigur ef marka má umræðu síðan hann sigraði forsetakosningarnar 4. nóvember í fyrra.
Talið er að um tvær milljónir manna hafi verið viðstödd embættistökuna í Washington og höfðu flestir verið að bíða þar síðan snemma um morgunin. Samkvæmt Fjölmiðlum vestanhafs hefur verið mikið álag á samgöngukerfi borgarinnar og mynduðustu langar biðraðir við lestarstöðvar borgarinnar. Mikið af heiðursgestum voru viðstaddir embættistökuna, en fyrir utan alla núlifandi fyrrverandi forseta Bandaríkjana og varaforseta voru einnig stórstjörnur og þekkt andlit á borð við Aretha Franklin, leikararnir Dustin Hoffman, Denzel Washington og leikstjórinn Steven Spielberg svo eitthvað sé nefnt.
Mikill viðbúnaður hefur verið í Washington í dag en sjá mátti lögreglumenn, öryggisverði og þjóðvarðliðum á götum borgarinnar, við þinghúsið og helstu stjórnarbyggingum í Washington. Stór hluti miðborgarinnar hafði verið lokað og var öll bílaumferð bönnuð um svæðið.
George W. Bush, nú fyrrverandi forseti Bandaríkjana, og einginkona hans flugu stuttu eftir að athöfninni lauk með þyrlu burt frá höfuðborginni í eftirlaun. Fyrir Obama bíður hinsvegar mikil vinna, en fyrir utan það að koma sér fyrir í Hvíta húsinu bíða auðvitað mörg mál sem hann þarf að takast á við eins og fjármálakreppuna sem hefur komið illa niður á marga bandaríkjabúa eins og víðast annar staðar.
Landpostur.is | Breytt 24.1.2009 kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. janúar 2009
Þingmenn og mótmælendur takast á
Á sviðuðum tíma og hitinn fyrir innan veggja Alþingis var sem hæst, ókst einnig mótmæli fólks fyrir utan þingið. Rétt fyrir kl 14 beitti svo Lögreglan piparúða gegn mótmælendur í Alþinigsgarðinum og hefur allt að tugur manns verið handteknir samkvæmt fréttum Ríkissjónvarpsins.
Samkvæmt fréttum á mbl.is eru mótmælin að ná ákveðnum suðupunkti. Lögreglan hefur nú beitt í piparúða á mótmælendur í nokkur skipti og eru sjúkrabílar við þinghúsið og veita mótmælendum aðhlynningu. Mótmælendur hafa kastað skyri, mjólk og eggjum í lögreglumenn á staðnum en talið er að hátt í annað hundrað lögreglumanna séu nú við störf við þinghúsið, flestir klæddir óeirðabúninga.
Landpostur.is | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 18. janúar 2009
Námsmenn mótmæla skerðingu í menntakerfinu
Landpostur.is | Breytt 20.1.2009 kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)