Færsluflokkur: Bloggar

Bæta lýsingu?

Ég var að keyra frá Leifsstöð til Reykjavíkur í eitt september kvöld í fyrra. Svo sem engin merkileg frásögn nema  hvað að áleiðinni var ákveðinn vegkafli ekki upplýstur og ljósin á steinsteypublokkunum voru einnig óvirkar. Var á löglegum ökuhraða auðvitað enda var dimmt og bara rólegheit. Nýkominn úr flugi frá Danmörku og svona. Það munaði hinsvegar litlu að maður hefði keyrt beint ofan í þessar steypublokkir þegar ljósin voru óvirk. Alls ekki gott :S

Kom þessu þó áfram til vegagerðinnar en hef þó ekki keyrt Reykjanesbrautina síðan þá.
mbl.is Létta merkingar á Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wuhhuuu :D

Til hamingju handritshöfundar ... þetta tók tíma en þetta tókst. Nú geta þáttafíklarnir fengið sína uppáhalds þætti á ný :D:D:D

mbl.is Handritshöfundar sömdu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endalaus eltingaleikur?

Hvað er að gerast. Völvan hafði rétt fyrir sér. Villi fór, dagur kom, dagur fer og óli kemur í staðinn. Svo kemur Villi skríðandi tilbaka í lokin. Eins og einn sambloggari skrifar um "Tag your it!" Hahah

Hvenær endar þetta póitísk hringavitleysa???


mbl.is Ólafur og Vilhjálmur stýra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meinlausari??

Eins og svo margir aðrir mbl bloggarar eru búnir að benda á er þessi frétt svo sannarlega villandi. Sjálfur hef ég orðið fyrir barðinu á ofurölvuðum einstaklingi en það leysist nokkuð vel. Ég var einfaldlega að sækja jakkan minn á NASA og einhver var óhress með að ég stóð þarna fyrir framan honum. Að öðru leyti þekki ég marga sem hafa orðið illa út úr tilefnislausum slagsmálum. Ég segi að ef maður lendir í svona einstaklingum er aðeins tvær leiðir út úr svona, lætur þig hverfa úr bænum eða endar upp á slysadeild. Oftar er fólkið undir áhrifum fíkniefna en ofurölvun, þó það eigi ekki alltaf við.

Fagna hinsvegar aukinni löggæslu í miðbænum. Hinsvegar mætti dreifa þeim betur um miðbæinn. Fréttir hafa sýnt sig að brot á lögreglusamþykktum og stórum slagsmálum hefur verulega minkað. Hinsvegar er meira um svona inn á stöðunum. Fagna einnig að staðirnir eru farnir að taka upp gagnabanka með þekktum slagsmálahundum. Vona að það skili árangri.

Hinsvegar er ég sammála frumvarpinu um að koma áfengi í verslanir. Það á samt ekki að neyða neinn verslunareigandi til þess að selja áfengi. Þetta eigi að vera ákvörðum búðarinnar hvort þeir vilja selja áfengi eða ekki. Vínbuðirnar ættu þó að starfa áfram eins og þær hafa gert. Það verður örugglega aukning á sölu en það jafnast út með tímanum.


mbl.is Drykkjusiðir Íslendinga orðnir meinlausari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú spyr maður sig ...

Hver einasta frétt um kosninga í löndum utan Evrópu tengjast alltaf svindl og mótmæli. Það er langt síðan ég hef heyrt fréttir af kosningum þar sem meirihlutinn var sáttur með úrslitin. Flestar fréttir eru bara af mótmælum og blóðsúthellingar hér og þar. Hvað er í gangi?


mbl.is Þúsundir mótmæla í Georgíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Týndur síðan á þriðjudagsmorgni??

Strákurinn búinn að vera týndur í nokkra daga og fyrst núna farið að lýsa eftir honum. Reyndar er erfitt að fara í leit þegar ekki er vitað um mögulega staðsetningu. Vonandi finnst hann sem fyrst.
mbl.is Lýst eftir 15 ára pilti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mín eigin smáborg á netinu

Rakst í gær á skemmtilega síðu þar sem ég bý til mína eigin smáborg. Með því að smella á eftirfarandi linka er hægt að bæta við íbúðartölu, auka við verslun og bæta samgöngur :D

Góða skemmtun ... endilega stofnið svo ykkar eigin borg.


Lýsing á gamlárskvöldi eða Þjóðhatíð?

Fæ tilfinninguna um að viðkomandi blaðamaður sé að upplifa Þjóðhátíðarfílinginn.

„[...]heimamenn fagna því með því að bjóða ferðamönnum inn á heimili sín, gefa þeim heitt að drekka[...]". Gestum er boðið inn í hvítu tjöldin og fá lunda, kaffi eða annan varning.

 „[...]kveikja varðelda og  ærslast um í álfabúningum[...]". Kveikja í tjöldunum sínum og ganga um í lopapeysum (allavega einhverjir).

 „[...]Alveg eins og í Hringadróttinssögu[...]". Fyllerís ruglið sem fylgir svona hátíð, þ.a.s. slagsmálin og bardagarnir.

Haha gaman að þessu :P 


mbl.is Íslendingar í álfabúningum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skora á íslendinga

Alveg gott og gilt að hreina upp flugeldarusl af götunum en það er óþarfi að skora á björgunarsveitir til þess að taka upp flugeldasorpið af götum borgarinnar. Þetta eigi alveg að falla undir hvern og einn einstakling að þrífa upp eftir sjálfan sig. Flestar björgunarsveitir keyra um sitt bæjarfélag eða svæði og týna upp jólatré og er það tímafrek vinna.

Skora þess vegna alla landsmenn og björgunarsveitarfólk til þess að hirða upp flugeldasorpið kringum sitt hús og jafnvel í sínu nánasta nágrenni.
mbl.is Skorað á björgunarsveitirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg jól

Óska öllum Gleðilegra jóla og farsælt komandi ár. Þakka fyrir samveruna á liðnu ári og sjáumst hress og kát á nýju ári :)

kv. Daníel Sigurður

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband